laugardagur, apríl 30, 2005

JÆJA ... það er komið að þvi að ég skrifi eitthvað hérna ... það er búið að líða smá tími síðan síðast... og er búin að slá garðinn 2 sinnum síðan ...ja þetta sprettur hérna og allt að blómstra,,,.... ja svo hef ég verið á fullu að gera baðherbergið vistlegra ..ja og gengur bara vel og held ég að ég verði bara ánægður með árangurinn þegar það er búið ... ja en þetta kostar sitt ...ekki að ástæðulausu að það er talað um að bað og eldhús séu dýrustu herberginn í húsum .... þetta verður eflaust búið að kosta mig um ca 60.000 ikr fyrir utan svo tímalaun ....ja og ef þau yrðu reiknuð inní væri þetta eflaust komið í um 150.000 - 200.000 kr íslenskar... Það eru nokkrar myndir inni á hinni heimasíðuni en það koma fleirri þegar ég verð endanlega búin ...
ja og svo er bara að fara detta hérna inn gestir hvað að hverju ...Ja Birna um næstu helgi og svo aftur eflaust um hvitasunnuna ..ja og Systa kmur þann 10 júni og svo veit ég ekki með Berglindi hvað hun gerir eða kemur ??????
ja svo þarf ég að fara á fuglaveiðar hérna úti ... er að verða þreyttur á þessum dúfum sem eru hérna og skíta allt út ...bíla og annað ,... maður er varla búin að bóna bíllin þá er fuglaskítur á honnum .. ja þarf bara að fara út með riffilin og plaffa á þennan fiðurfénað .... ja éf þetta væru nú r´jupur gæti maður kanski selt þetta dýrum dómi á íslandi ...????..
En hérna er komið "SUMAR" með um 17- 22°c hita ,,annað en á íslandi bara snj´+or og hálka ...svo er verið að reina draga mann til baka til íslands... JA JA í snjóinn ...nei takk hann á að vera um veturna... ja það var víst ekki mikið um snjó á íslandi í vetur svo það er bara betra að halda sér hérna og fara bara í skiðaferðalag til Noregs eða Alpana þegar manni vantar snjó ....
jæja er þetta bara ekki orðið gott núna ... ef ekki þá verður fólk bara að kvarta....
OG eitt mamma verður 60 ára um 6 daga ... hvað maður á að kaupa veit ég ekki ...komið með uppástungu ..takk
Kveðja Skarpi

sunnudagur, apríl 17, 2005

jæja bara.. svosem ekkert að fretta .... á fullu í að laga baðið ..spasla og mála ...
en annars ekkert nýtt.... kikið á hina heimasíðuna ... nýjar myndir þar....
http://spaces.msn.com/members/skarpi
bæbæ

þriðjudagur, apríl 12, 2005

JÆJA sláttur hafin hérna í DK .. ja engin lígi það ég sló garðin í fyrsta skipti í ár í dag... og svo er ég á fullu í að laga baðherbergið ..(myndir af þvi seina) en það er nú meira puðið ... spartsla og spartla aftur og púsa á milli ... ja og svo þarf ég að gerast pípari um næstu helgi ..... en annars ekkert svo sem merkilegt að gerast hérna .... svo þetta er stutt nuna... hilsen Skarpi

sunnudagur, apríl 03, 2005

Sumar.... ja næstum þvi bara sumar held ég allavega vor ... hérna er buið að vera um 15 til 20°c hiti og sól síðustu daga ... og var helginn notuð í að fara og spóka sig um á göngugötuni í Flensborg og kikja i búðir með vinkonuni Binaca.... ja og i dag fékk svo garðurinn og annað sinn tima .. og svo grillað á eftir hjá Magga...
ja og er spáð svona veðri afram allavega á morgum og svo á að vökva gróðurinn á miðvikudag ..ja svo þá tekkur gróðurinn sko við sér.....
ja annars gengur þetta bara sinn vana gang.. þarf að fara vera duglegur nuna næstu mánuði ....ja taka í geng baðherbergið og taka til á loftinu og bílskúrnum ... hehe Systa má nu ekki sjá allt draslið hjá mér ...hehe....
nei nei það er ekkert svoleiðis ..bara regla á óregluni hja mér ....
heyrumst...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Gerast áskrifandi að Færslur [Atom]